Við hjá Mitsubishi Corporation (MC) gerum okkur grein fyrir því að persónugreinandi upplýsingar, eins og t.d. nöfn og afmælisdagar, eru afar viðkvæmar gagnvart persónuvernd notenda síðunnar. MC mun í engum tilvikum birta persónuupplýsingar af því tagi né munum við afla slíkra upplýsinga þegar notendur heimsækja alþjóðlega vefsíðu MC sem er http://www.mitsubishicorp.com. Þá má nefna að þótt við greinum tölfræðilegar staðreyndir viðvíkjandi heimasíðu okkar felur sú greining á engan hátt í sér persónuupplýsingar. Sé persónuupplýsinga aflað munum við tilkynna um það og með upplýsingar sem safnast verður farið í samræmi við vinnureglur 1 til 4 hér að neðan. Notendur geta skoðað stærstan hluta vefsvæðis okkar án þess að gefa uppi persónuupplýsingar en hafa verður í huga að með því móti er ekki tryggt að þeir hafi fullan aðgang að allri þjónustu innan svæðisins.
Við áskiljum okkur rétt til að nota smygildi (cookie) til að veita þeim notendum betri þjónustu sem heimsækja vefsvæði okkar ítrekað. Þegar notandi heimsækir vefsvæði okkar í fyrsta sinn er auðkennisviðhengi sem kallast smygildi (cookie) sent til smygildisvirks skoðunarforrits notandans. Þegar notandinn heimsækir vefsvæði okkar á nýjan leik gerir auðkennisviðhengið okkur viðvart um þetta sé sami notandi og heimsótti okkur áður. Þrátt fyrir þetta er engin leið fyrir okkur að persónugreina notandann, að því gefnu að gefi ekki upp persónuupplýsingar sínar. Notandinn viðheldur því nafnleynd sinni. Notandi getur stillt skoðunarforritið þannig að það geri honum viðvart þegar honum berast smygildi eða þannig að það hafni alfarið móttöku smygilda.
|
1.
|
Komi til þess að við söfnum persónuupplýsingum um notanda látum við hann áður vita í hvaða tilgangi við gerum það, gefum honum upp tengilið og hugsanlega dreifingu á þessum upplýsingum til þriðja aðila. Í framhaldinu söfnum við slíkum upplýsingum í samræmi við fyrirhugaða notkun.
|
|
2.
|
|
Mitsubishi Corporation meðhöndlar persónuupplýsingar á viðeigandi hátt og afhendir þriðja aðila þær ekki án heimildar notanda nema í eftirfarandi undantekningartilvikum: Krefjist dómstólar, lögformleg yfirvöld eða aðrir opinberir aðilar þess að við veitum eða birtum upplýsingarnar.
Þarfnist samningaaðilar okkar persónuupplýsinga í þeim tilgangi að greiða fyrir viðskiptum inni á vefsvæði okkar og meðhöndla fyrirspurnir, munum við veita aðgang að þeim að svo miklu leyti sem nauðsynlegt er og að undangengnu trúnaðarsamkomulagi.
Við óvenjulegar kringumstæður sem ekki falla undir skilgreiningar að ofan.
Í þeim tilvikum, sem við höfum fengið heimild notanda til þess að veita þriðja aðila aðgang að persónuupplýsingum hans, komum við á bindandi samningi þar um og grípum til annarra viðeigandi ráðstafana til að koma í veg fyrir að sá aðili ljóstri upp um slíkar upplýsingar.
|
|
|
|
|
3.
|
Óski notandi þess að upplýsingar um hann séu birtar, leiðréttar, bætt við þær eða þeim eytt hefur hann samband við okkur á síðunni Hafðu samband á vefsvæðinu okkar. Við bregðumst við beiðnum af þessu tagi eins fljótt og okkur er auðið.
|
|
4.
|
Mitsubishi Corporation mun framfylgja siðareglum og viðmiðum sem eiga við gagnvart varðveislu og notkun persónuupplýsinga. Stefna fyrirtækisins á þessu sviði verður til stöðugrar endurskoðunar og endurbætur gerðar á henni þegar þurfa þykir.
|