service_pack.jpg

 

MITSUBISHI ÞJÓNUSTA

Þjónustuborð

servicepackage_lancersportback.jpgMánudaga - föstudaga frá kl. 8.00 - 17.00. Þjónustuborðið sér um allar tímabókanir á verkstæði og veitir upplýsingar um stöðu bíla inni á verkstæði. Starfsfólk þjónustuborðs svarar einnig fyrirspurnum viðskiptavina um ýmis mál tengd þjónustu HEKLU  og komið fyrirspurnum áfram til réttra aðila innan fyrirtækisins. Hafið samband í síma 590-5030 eða sendið okkur  tölvupóst á thjonusta@hekla.is

Bifreiðaverkstæði

Bifreiðaverkstæði HEKLU annast viðgerðir og þjónustuskoðanir á Mitsubishi bifreiðum. Stefna HEKLU er að bifreiðaverkstæði HEKLU sé leiðandi hérlendis í innleiðingu á tækninýjungum, menntunarmálum og þjónustumálum. Nýjustu verkfæri sem framleiðendur kynna eru til staðar áður en nýr bíll er kynntur þannig að ávallt er til staðar fullkomnasti búnaður sem framleiðendur mæla með hverju sinni. Loks skiptir það okkur miklu máli að við getum þjónustað þig á sem bestan hátt.

Neyðarþjónusta

Utan venjulegs opnunartíma er hægt að ná í starfsmann verkstæðis í neyðarsímanúmer, 825-5640. Neyðarsíminn er opinn virka daga 17:00- 22:00 og um helgar 10:00-21:00. Athugið að gjald er tekið fyrir bíla sem ekki eru í ábyrgð og greitt er aukalega fyrir viðgerðir sem framkvæmar eru á þessum tímum.