service_pack.jpg

 

Þjónustuborð

Þjónustuverkstæði

servicepackage_lancer.jpgMánudaga - föstudaga frá kl. 8.00 - 17.00. Þjónustuborðið sér um allar tímabókanir á verkstæði og veitir upplýsingar um stöðu bíla inni á verkstæði. Starfsfólk þjónustuborðs svarar einnig fyrirspurnum viðskiptavina um ýmis mál tengd þjónustu HEKLU  og komið fyrirspurnum áfram til réttra aðila innan fyrirtækisins. Hafið samband í síma 590-5030 eða sendið okkur  tölvupóst á thjonusta@hekla.is

Neyðarþjónusta

Bifreiðaverkstæði HEKLU annast viðgerðir og þjónustuskoðanir á Mitsubishi bifreiðum. Stefna HEKLU er að bifreiðaverkstæði HEKLU sé leiðandi hérlendis í innleiðingu á tækninýjungum, menntunarmálum og þjónustumálum. Nýjustu verkfæri sem framleiðendur kynna eru til staðar áður en nýr bíll er kynntur þannig að ávallt er til staðar fullkomnasti búnaður sem framleiðendur mæla með hverju sinni. Loks skiptir það okkur miklu máli að við getum þjónustað þig á sem bestan hátt.