FrÉttir

increase fontsize decrease fontsize

Rokkmusteri



  HLJÓMKERFIÐ Í NÝJUM PAJERO ER EINSTAKT Í SINNI RÖÐ


Tónlist í eyrum þínum: Hljómkerfið sem Mitsubishi er að innleiða í nýja Pajero-bílnum er einstakt á marga vegu. Starfsfólk Mitsubishi er fullkomnunarsinnar — aðeins það besta er nógu gott. Þess vegna er Mitsubishi nú að innleiða mjög sérstakt hljómkerfi fyrir sanna unnendur. Það var hannað sérstaklega fyrir Pajero-bílinn af bandarísku hljóðsérfræðingunum hjá Rockford Corporation. Kannski kannast fáir Evrópubúar við þetta fyrirtæki, en það á örugglega eftir að breytast. Mitsubishi er fyrsti bílaframleiðandinn í Evrópu sem býður upp á sérstakt Rockford hljómkerfi sem er sérhannað fyrir bílinn. Og þegar þú hefur einu sinni hlustað á þetta fyrsta flokks kerfi gerir þú allt sem þú getur til að setja það upp í þínum eigin bíl. En þó að það takist hljómar það aldrei eins og það hljómar í Pajero. Hvers vegna?


Svarið er mjög einfalt: Rockford Corporation tók þátt í þróun nýja Pajero-bílsins frá upphafi. Þess vegna var besta staðsetning hátalaranna felld inn í hönnun hurðanna. Í meginatriðum var hljómkerfið smíðað með bílnum. Þessi einstæða nálgun hefur gefið af sér óvenjulega hágæða hljóðuppsetningu sem býður eyrum þínum upp á 860 vött af fullkomlega jöfnuðum krafti tólf hátalara, þar með talið kraftmiklum bassahátalara fyrir hinn endanlega bassahljóm. Samþætti tónlistarþjónninn felur í sér gagnagrunn um geisladiska sem áreynslulaust töfrar fram á skjáinn í miðborðinu allar þær upplýsingar sem þú vilt um uppáhaldstónlistina þína. Þú trúir ekki eigin eyrum.


„Fólkið sem vinnur hjá Rockford Corporation eru sannir ofstækismenn hvað hljóð varðar. Það er eina leiðin til að ná því einbeitta markmiði að framleiða bestu bílahljómkerfin. Auðvitað uppskerum við árangurinn af yfirgripsmiklum tilraunum í hljóðtækni. Að hanna hljómkerfið fyrir nýja Pajero-bílinn er kremið á kökunni fyrir okkur. Við erum mjög stolt af að hafa unnið að þessu verkefni með Mitsubishi og erum nægilega sjálfsörugg til að fullyrða það að Rockford Acoustic Design Premium hljóðkerfið er eitt besta hljómkerfið í heiminum. Það er eins og hljómleikahöll en staðsett ofan á heimsins bestu hjólum. Það eina sem við getum sagt við þig, „Heimsæktu söluaðilann og dæmdu sjálf(ur). Við ábyrgjumst að þú verður furðu lostin(n)," segir Gary Suttle, framkvæmdastjóri Rockford Corporation.


 


  Til baka