Miklu meira en þú getur ímyndað þér

Það mun koma þér á óvart hve víðtæka framleiðslu og þjónustu Mitsubishi fyrirtækin reka um allan heim. Samt sem áður getur þú reitt þig á að hjá öllum rekstrareiningum Mitsubishi samsteypunnar starfar mjög hæft fólk sem sameiginlega vinnur eftir þremur meginreglum okkar. Þessar reglur eru: Samábyrgð, heiðarleiki og sanngirni, skilningur á alþjóðlegum viðskiptum. Þú getur einnig gengið að nákvæmri tækni og áreiðanleika sem vísum hlutum, en það er notaleg tilfinning.

 

Frækin arfleifð

Löng og viðburðarík saga

Meira en góðir bílar

Við þjónum þínum þörfum

Á heimsvísu

Japanskt ætterni, Mitsubishi arfleifðVið sem tilheyrum Mitsubishi Motors erum hreykin, bæði af okkar japanska ætterni og okkar Mitsubishi arfleifð. Í tímans rás hafa þessi gildi hjálpað okkur að gera vörumerkið okkar að ímynd nafntogaðra gæða, þar sem blandast saman sterk áhrif japanskrar hönnunar, verktækni og áreiðanleika ásamt sanngjarnri verðlagningu og stöðugri viðleitni til að innleiða nýjungar og sportleg viðhorf. Í dag er Mitsubishi Motors í hópi stærri framleiðenda í heiminum og hefur á boðstólum fjölbreytt úrval bifreiða, hönnuðum og framleiddum í Japan fyrir alþjóðlegan markað, sem seldar eru á rúmlega 160 markaðssvæðum. Framleiðslan fer fram í 7 verksmiðjum, sem hafa aðsetur í 5 löndum, auk þess sem samstarf er við 12 aðra framleiðendur í 11 löndum. Í framtíðinni mun MMC einbeita sér að miðstýrðri framleiðslu alþjóðlegra bifreiða með notkun nýrrar hönnunartækni, sem gerir mögulegt að verða við ólíkum kröfum um gerð og búnað. Þetta er í samræmi við svokallaðan project Global undirvagn, sem reynst hefur með afbrigðum vel, og Lancer, Lancer Evolution, Outlander, Delica D5 o.fl. eru byggðir á.  Í öðru lagi verður horfið frá áherslu á fjölsviðsbíla (SUV), en stefnan sett á framleiðslu vistvænna fjölskyldubíla/aldrifsbíla, sem fylgt er eftir með því að innleiða ýmsa nýtækni. Hér er m.a. átt við MiEV rafbílinn sem er með algjörlega rafræna aflrás, Colt með sjálfvirka ræsingu/stöðvun vélar, sem dregur verulega úr losun koltvísýrings og ýmsar tengdar nýjungar svo sem gírkassa með tvítengsli og „4N13” dísilhreyfilinn sem uppfyllir nú þegar EURO 5 mengunarreglugerð framtíðarinnar. 

Glæsileg arfleifð
Á rætur að rekja ti 19. aldar!
Framleiðsla- og þjónusta Mitsubishi á heimsvísu á eftir að koma þér á óvart!

teaser_proud_heritage.jpg
Nýjustu fréttir
Fylgstu með
Lestu nýjustu fréttir um Mitsubishi, gerðirnar sem við bjóðum upp á, tilboð, þjónustu o.fl.

teaser_latest_news.jpg