Skynsamlegi, græni valkosturinn
Nýr i MiEV verður einn fyrsti fjöldaframleiddi rafbíllinn sem settur er á markað í Evrópu. Og það er viðbúið að hann eigi eftir að valda straumhvörfum í viðhorfi okkar til bíla. i MiEV, sem stendur fyrir i Mitsubishi innovative Electric Vehicle, er hápunktur umhverfisvænnar tækniþróunar Mitsubishi Motors og tákn um þá þrotlausu viðleitni okkar að draga úr álagi á umhverfið. i MiEV losar ekki koltvísýring og er skemmtilegur í akstri. Hann er hagkvæmur bíll og er skýrt dæmi um það markmið okkar að skapa sjálfbæra framtíð.
i MiEV er hraðskreiður, snöggur, yfirmáta hljóðlátur og notendavænn bíll. Hann er fernra dyra og tekur fjóra í sæti. i MiEV er því fyrsti hagkvæmi og nútímalegi rafbíllinn frá einum af stórum bílaframleiðendunum sem væntanlegur er á markað innan tíðar í Evrópu. Þeir bílar sem stálu senunni á bílasýningunni í Genf í mars 2009 voru i MiEV frumgerðin og SPORT AIR hugmyndabíllinn. Spurningin á allra vörum var hvenær verður i MiEV fáanlegur. Fyrir stærstan hluta Evrópu felst svarið í árinu 2010 en sala á bílnum hófst í Japan og Bretlandi á síðasta ári.
Rafbílar í fjóra áratugi
Áratuga reynsla.jpg?n=1459)
Nýtækni
Hugvitsöm hönnun eykur geymslurými.jpg?n=8069)
Enginn koltvísýringur (CO2)
Lægri rekstrarkostnaður .jpg?n=7992)
i MiEV í Evrópu
Prófanir á i MiEV