
Ljósmynd: Aðalsteinn Svan Hjelm. |
Myndir úr ferðinni 19. september: Okkur hafa þegar borist myndir úr Pajeroklúbbsferðinni sem farin var sl. laugardag. Ríflega eitt hundrað bílar voru með í för og hátt í 370 manns.
Oscar Bjarnason sendi okkur fyrstu myndirnar. Þið getið nálgast þær hér.
Jón Trausti Ólafsson sendi okkar þessar myndir.
Eins og undanfarin ár stóð Pajeroklúbburinn fyrir hinni sívinsælu Pajeroferð fjölskyldunnar. Farið var um lítt farnar slóðir í nágrenni borgarinnar og látið reyna á bílana. HEKLA bauð öllum þátttakendum í morgunhressingu og grill í hádeginu.
LEIÐARLÝSING
Mæting í HEKLU Laugavegi, laugardaginn 19. september kl 9:30. Boðið var upp á morgunhressingu. Brottför kl 10:00.
Ekið var upp á Ártúnshöfða og Suðurlandsveg fram hjá Geithálsi, síðan um Nesjavallaleið og beygt af þeim vegi í norður svokallaðan Frakkastíg. Þetta er í raun línuvegur sem liggur frá Dyrafjöllum niður í Grafning og er 6 km langur grófur, skemmtilegur og krefjandi slóði. Útsýni yfir Þingvallavatn er fagurt frá þessum slóða.
Ekið niður í Nesjar, alveg niður ífjöruborð og aftur upp á veginn um Grafning. Stefnan síðan tekin á Þingvöll. Stutt stopp var á bílaplaninu þar sem Valhöll stóð. Ekinn vegurinn með vatninu fram hjá Klifhólum og alla leið að Soginu. Yfir brúna við Írafoss og síðan beygt inn á Torfastaðaveg og stoppað við Úlfljótsskála, þar sem HEKLA bauð uppá grillmat af bestu gerð.
Eftir hádegismat var ekin stysta leið niður á þjóðveg 1 og þaðan upp á Kambabrún og ekinn vegur sem merktur er Ölkelduháls. Ekin var leið sem kallast „1000 vatnaleiðin“ meðal jeppamanna. Ekið um virkjanasvæði Hellisheiðarvirkjunar og síðan beint niður Hellisskarð að gestastofu Hellisheiðarvirkjunnar þar sem tekið var á móti ferðalöngum og virkjunin skoðuð með leiðsögn. Þar endaði ferðin formlega, en hún tók um 5 klst. að Hellisheiðarvirkjun. Eknir voru u.þ.b. 170 km. Leiðsögumaður var að venju Ari Arnórsson og lýsti hann ferðinni á FM 107,1.
Ferðin tókst í alla staði frábærlega.
---
Snemma árs 2003 kynnti HEKLA nýja gerð Mitsubishi Pajero. Við það tækifæri var formlega stofnað félag sem hlotið hefur nafnið „Pajeroklúbburinn". Klúbburinn hefur það að markmiði að vera sameiginlegur vettvangur eigenda Pajero, Pajero Sport, Pajero Pinin, L200, L300 og Outlander og er meginmarkmið klúbbsins er að njóta saman lífsins og útiveru á góðum bíl. Formaður klúbbsins er Jóhannes Jóhannesson, þrautreyndur áhugamaður um jeppaferðir og útivist til margra ára.
Pajeroklúbburinn hefur staðið fyrir níu skipulögðum Pajeroklúbbsferðum frá stofnun. Fyrsta ferðin var farin í lok maí 2003. Síðan þá hefur m.a. verið farið í Landmannalaugar, að rótum Heklu, til Þingvalla og í Borgarfjörð.
Mitsubishi Motors á Íslandi






