FRÉTTIR

i MiEV HLÝTUR ALÞJÓÐLEG UMHVERFISVERÐLAUN


Mitsubishi Motors hlaut nýlega umhverfisverðlaunin  “Environment Special Grand Prize” fyrir iMiEV, nýja kynslóð rafbíla. Verðlaunin voru afhent á Alþjóðlegu bílahátíðinni í París sem haldin var í 25. sinn í febrúar.
Mitsubishi i-MiEV var einn af fjórum bílum sem tilnefndir voru til verðlaunanna á grundvelli "verkefna sem horfa til framtíðar fyrir sjálfbærar samgöngur með tilliti til umhverfisverndar eða öryggis". Dómnefndin var skipuð 18 þekktum einstaklingum sem starfa á sviði hönnunar, tísku, bílaframleiðslu og fjölmiðla.Kiyoshi Teshima, forstjóri Mitsubishi Motors í Frakklandi, tók við verðlaununum fyrir hönd Mitsubishi Motors. "Okkur er sýndur mikill  heiður með þessum verðlaunum. Þau munu verða verkfræðingum okkar hvatning til þess að halda enn frekar á lofti því frumkvöðlastarfi Mitsubishi að auka vinsældir bíla með nýjum orkugjöfum," sagði Teshima.Mitsubishi i-MiEV hefur verið fáanlegur í Japan síðan í júlí á síðasta ári.  Engin koltvísýringslosun fylgir notkun Mitsubishi i-MiEV og lágmarkslosun verður við framleiðslu hans. Af þeim sökum er i-MiEV mikilsvert framlag til loftslagsverndar í heiminum.Ráðgert er að i-MiEV komi á markað í Evrópu fyrir árslok 2010. Hleðslukerfi bílsins verður samhæft evrópskum heimilisstöðlum, 220/240V. Reiknað er með að það taki að hámarki sjö klukkustundir að fullhlaða rafgeymana.Alþjóðlega bílahátíðina var haldin í fyrst sinn árið 1986. Tilgangur hennar er að vekja athygli á hæfileikaríkum hönnuðum, listamönnum, mönnum og konum sem eru í fararbroddi framþróunar innan bílaiðnaðarins.

i MiEV KOMINN TIL LANDSINS


i MiEV rafbíllinn frá Mitsubishi Motors er kominn til landsins sem liður í tilraunaverkefni á vegum iðnaðarráðuneytisins. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, segir að sú orka sem liggi beinast við að nýta í auknum mæli í samgöngum sé raforka frá endurnýjanlegum náttúruauðlindum.
Katrín segir að eigi áætlun um orkuskipti að ýta undir þróunina í átt til vistvænni samgangna og notkun innlendra visthæfra orkugjafa í stað innflutts kolefnaeldsneytis sé óhjákvæmilegt að ríkisvaldið beiti markvissum aðgerðum, þar á meðal skattlagningu ökutækja, eins og fordæmi séu fyrir víða erlendis. Katrín bendir á að til að ná árangri á allra næstu árum þurfi einnig að skoða álagningu virðisaukaskatts á rafmagnsbíla þar til þeir verða samkeppnisfærir á markaðsforsendum.

Lancer Sportback - Fyrsta flokks öryggi


Nú er það opinbert að Mitsubishi Lancer er í hópi öruggustu bíla heims. Lancer fékk fullt hús stiga, fimm stjörnur, í árekstrarprófun Euro NCAP fyrir framúrskarandi varnir fyrir fullorðna farþega og öryggi barna og vegfarenda. Ennfremur stuðlaði öryggisstoðkerfi Mitsubishi að þessari góðu útkomu. Þar skipti mestu máli virk stöðugleika- og spyrnustýring Mitsubishi (ASTC).

Evolution þríeyki hjá lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri


Nýlega bættist í flota umferðarafbrotadeildar lögreglunnar í Suður-Jórvíkurskíri á Bretlandi sérútbúinn Lancer Evolution.
Nýlega bættist í flota umferðarafbrotadeildar lögreglunnar í Suður-Jórvíkurskíri á Bretlandi sérútbúinn Lancer Evolution. Fyrir í bílaflota lögregludeildarinnar voru Evo VIII og Evo IX.Þessi sérútbúni Mitsubishi byggir á reynslu og sprengikrafti níu undangenginna kynslóða. Lögreglunni ætti því ekki að verða skotaskuld úr því að draga uppi glannana í umferðinni. Sömuleiðis ætti Lancer Evolution að reynast meira en gagnlegur til að hafa hendur í hári fíkniefnasala og bílþjófa.En saman á ferð mun þessi þrenning Lancer Evolution bíla sennilega skjóta afbrotamönnum slíkan skelk í bringu að þeir leggja árar í bát og reyna ekki undankomu.

i MiEV HLÝTUR ALÞJÓÐLEG UMHVERFISVERÐLAUN




 

i MiEV KOMINN TIL LANDSINS




i MiEV er kominn til landsins

Lancer Sportback - Fyrsta flokks öryggi




Nú er það opinbert að Mitsubishi Lancer er í hópi öruggustu bíla heims.

Evolution þríeyki hjá lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri




Nýlega bættist í flota umferðarafbrotadeildar lögreglunnar í Suður-Jórvíkurskíri á Bretlandi sérútbúinn Lancer Evolution.

Glæsileg arfleifð
Á rætur að rekja ti 19. aldar!
Framleiðsla- og þjónusta Mitsubishi á heimsvísu á eftir að koma þér á óvart!

teaser_proud_heritage.jpg
Nýjustu fréttir
Fylgstu með
Lestu nýjustu fréttir um Mitsubishi, gerðirnar sem við bjóðum upp á, tilboð, þjónustu o.fl.

teaser_latest_news.jpg